Hjólbarðaverkstæði SB
Nú þegar vetur gengur í garð, viljum við minna á Hjólbarðaþjónustu okkar
Bílaverkstæði SB, Ísafirði, rekur samhliða viðgerðarverkstæði, Hjólbarðaverkstæði, þar sem fram fer öll almenn dekkjaþjónusta og dekkjasala.
Við eigum dekk á lager í algengustu stærðum, en útvegum þær dekkjastærðir sem við eigum ekki til, með stuttum fyrirvara.
Við veitum 10% afslátt af öllum nýjum dekkjum frá N1.
Verðdæmi þjónustu: Umfelgun fólksbíla kr. 5.830,-
Umfelgun jepplinga kr. 6.982,-
Við veitum 15% afslátt af þurrkublöðum út nóvember, þegar komið er með bíl í umfelgun.
Einnig veitum við 10% afslátt af Hrímeyði.
( eyðir hrími af rúðum, þarf ekkert að skafa ef hrímið er ekki því þykkara )